Klæði - Anna Jakobína Hinriksdóttir
Dórukot - Halldóra Björk NorðdahlÉg er fædd 1973 og alin upp á Ísafirði þar sem ég hef búið mest alla mína tíð. Ég flutti til Kópavogs 1998 og starfaði sem dagmóðir 1999 - 2004. Þá flutti ég aftur til Ísafjarðar þar sem ég starfaði áfram sem dagmóðir til vors 2011. Hálfu öðru ári áður en ég hætti með daggæsluna hannaði ég húfurnar sem fengu strax frábærar móttökur. Fljótlega urðu vörurnar fleiri og loks lokaði ég daggæslunni vegna mikilla anna í Dórukoti. Síðan þá hefur þetta verið mitt aðal starf. Í mars opnuðum við Klæðakot og þá fluttum við fyrst saumastofuna út af heimilinu og hófum verslunarrekstur með. Ég á 4 börn, Herdísi Mjöll Eiríksdóttur fædda 1990, Þormóð Eiríksson fæddan 1996, Björn Dag Eiríksson fæddan 1999 og fósturdóttur Maríu Rut Kristinsdóttur fædda 1989. Eiginmaður minn er Kristinn Jónsson (1967) og starfar hjá Vegagerðinni.
|